Wikipedia

Í dag 15. janúar 2021 heldur Wikipedia upp á 20 ára afmæli sitt en vefurinn fór fyrst í loftið 15. janúar 2001.

Sjálfur hef ég skrifað efni inn á Wikipediuna, bæði ensku og íslensku (og örfáar aðrar) síðan haustið 2005.

Margar hendur vinna mikið verk og það er Wikipedia svo sannarlega, er nú á mínu sextánda ári sem möppudýr á þeirri íslensku – möppudýrin hafa sumsé auga með púkum sem halda að þarna hafi þeir fundið vænlegt fjós til að fitna í – og passa upp á að þeir grindhorist í staðinn.

Þessir fánar voru sérpantaðir af okkur og prentaðir í Fjölprenti.